Hver er kylfingurinn: Marc Leishman?
Marc Leishman er nafn sem ekki öllum golfáhugamanninum er kunnugt, ekki nema kannski þeim sem fylgjast hvað best með. Nú í vikunni kann það að breytast en Leishman er hitt „villta kortið“ þ.e. val fyrirliða Alþjóðaliðsins, Nick Price, í Forsetabikarnum, en keppnin hefst einmitt á morgun í Ohio.
Golf 1 hefir verið að kynna „villtu kort“ þeirra Fred Couples, Webb Simpson og Jordan Spieth Sjá hér:
Hver er kylfingurinn: Jordan Spieth?
Hver er kylfingurinn Webb Simpson I?; Hver er kylfingurinn Webb Simpson II? og Hver er kylfingurinn Webb Simpson III?
Eins er Golf 1 búið að kynna annað villta kort Nick Price, Sjá hér: Hver er kylfingurinn: Brendon de Jonge? … og nú er bara eftir að kynna Marc Leishman.
Marc Leishman fæddist í Warrnambool í Victoriu, Ástralíu þann 24. október 1983 og verður því 30 ára seinna í mánuðnum. Sem stendur spilar Leishman á PGA Tour en hann hlaut nýliðaverðlaunin á mótaröðinni árið 2009. Hann var fyrsti Ástralinn til þess að vinna þau verðlaun.
Leishman átti afar farsælan áhugamannsferil í Ástralíu, þar sem hann vann mörg unglingamót. Hann varð klúbbmeistari í Warrnambool Golf Club Championship 13 ára, en hann spilaði þá í sama flokki og pabbi hans. Árið 2001 vann hann the Victorian Junior Masters, the South Australian Junior Masters og var piltameistari Victoriu.
Leishman gerðist atvinnumaður í golfi 2005. Hann spilaði á the Von Nida Tour árið 2006 og vann tvö mót og varð efstur á stigalista mótaraðarinnar.
Árið 2007 var Leishman nýliði á the Nationwide Tour og varð í 92. sæti á peningalistanum. Hann vann fyrsta titil sinn á Nationwide Tour árið 2008 á WNB Golf Classic og jafnaði met Chris Smith með það að eiga 11 högg á næsta keppanda. Leishman lauk árinu í 19. sæti á peningalistanum og vann kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2009.
Leishman var valinn nýliði ársins árið 2009 eftir að verða þrívegis meðal efstu 10 á mótum þ.á.m. varð hann í 2. sæti á eftir Tiger Woods á BMW Championship, Leishman komst þ.a.l. á Tour Championship. Hann lauk árinu 2009 í 53. sætinu á peningalistanum.
Hann varð í annað sinn í 2. sæti á PGA Tour á Farmers Insurance Open árið 2010. Hann lauk árinu á topp-100 á peningalistum keppnistímabilanna 2010 og 2011. Hann spilaði á BMW Championship á báðum keppnistímabilum.
Leishman vann fyrsta mótið sitt á PGA Tour eftir að hafa leikið í 96 mótum á mótaröðinni 12. júní 2012 þegar hann sigraði the Travelers Championship. Fyrir lokahringinn var hann 6 höggum á eftir forystunni en vann efstu menn með 1 höggi. Lokahringur hans í mótinu var einkar glæsilegur upp á 62 högg, en þar missti hann hvergi högg og fékk 8 fugla. Þetta er besti hringur golfferils Leishman til þessa. Hann varð 2. Ástralinn til þess að vinna mótið; en sá fyrsti var hvíti hákarlinn: Greg Norman.
Segja má að 2013 sé ár Leishman. Það byrjaði vel hjá honum, m.a. var hann í forystu á The Masters risamótinu eftir opnunarhringinn, ásamt Sergio Garcia. Báðir voru á 6 undir pari, 66 höggum. Fyrir lokahringinn á Masters var hann 2 höggum á eftir forystumönnunum. Hann lauk keppninni i 4. sæti, sem er besti árangur hans í risamóti til þess.
Nú í ár valdi Nick Price Leishman einnig í Alþjóðaliðið og verður að telja líklegt að með ofangreindum góðum árangri í The Masters hafi Leishman rækilega tekist að vekja athygli á sér. En skyldu hann og De Jonge vera jafngott val og Jordan Spieth og Webb Simpson?
Það kemur í ljós nú um helgina í Forsetabikarnum, sem hefst á morgun og lýkur n.k. sunnudag.
Heimild: Wikipedia
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

