Hver er kylfingurinn: David Howell?
Enski kylfingurinn David Howell varð um 97 milljónum íslenskra króna ríkari eftir að sigra á Alfred Dunhill Links Championship í Skotlandi í gær. Á ferli sínum hefir hann hins vegar unnið sér inn um 1,2 milljarð íslenskra króna. Nú er Howell ekki í fréttum daglega, m.a. þar sem 7 ár eru síðan að hann vann mót á Evrópumótaröðinni síðast. Þannig að ýmsir kunna að spyrja: Hver er kylfingurinn?
David Alexander Howell fæddist 23. júní 1975 í Swindon, Englandi og er því 38 ára. Hann á því sama afmælisdag og m.a. Colin Montgomerie. Ferill hans hafði fram til dagsins í gær náð einum markverðum hápunkti árið 2006 þegar hann náði að verða meðal efstu 10 kylfinga heimslistans það ár, að vísu í stuttan tíma. Kona Howell heitir Emily og þau eiga soninn Freddie George.
Howell var í Broome Manor Golf Club og gerðist atvinnumaður árið 1995. Hann vann the Australian PGA Championship árið 1998 og árið 1999 sigraði hann á Dubai Desert Classic. Síðan var rólegt um Howell næstu 6 árin, en hann var þó í góðu formi og bætti sig stöðugt. Reyndar svolítið skrítið með Howell hann virðist koma fram á sjónarsviðið svona á 6-7 ára fresti. Hann var í 10. sæti á stigalista Evrópu árið 2004 og árið 2005 var jafnvel enn betra. Um vorið 2005 náði hann 2. sætinu 2. árið í röð á tveimur mótum The Daily Telegraph Dunlop Masters og the Nissan Irish Open, og í ágúst það ár vann hann the BMW International Open. Um haustið 2005 var Howell meðal efstu 20 á heimslistanum.
Í nóvember 2005 vann Howell fyrsta HSBC Champions mótið sem haldið var, en það mót var það fyrsta á 2006 keppnistímabilinu. Með sigrinum náði hann besta árangri sínum á heimslistanum þ.e. 13. sætinu og á sínum tíma var hann sá breski kylfingur var hæst skrifaður á þeim lista og eins var þetta næstbesti árangur evrópsks kylfings á þeim tíma. Í maí 2006 eftir að hann vann the BMW Championship fór hann í fyrsta sinn á topp-10 sæti á heimslistanum og í júní það ár náði hann nýjum hæðum eða 9. sæti heimslistans.
Eftir að hafa verið í 1. sæti á stigalista Evrópu mestmegnið af árinu 2006 þá varð hann þó að sætta sig við 3. sæti listans vegna bakmeiðsla sem hrjáðu hann seinni part keppnistímabilsins og hindruðu hann í að keppa af fullum krafti 2007.
Óhætt er þó að segja að sigur Howell í gær þar sem hann vann Bandaríkjamanninn Peter Uihlein í bráðabana á 2. holu sé stærsti sigur hans til þessa.
Howell var í sigurliðum Evrópu í Ryder Cup árin 2004 og 2006 og eins var hann í liði Breta&Íra í Seve Trophy þ.e. tapliðinu árið 2000 en í sigurliðinu 2003.
Umboðsskrifstofa Howell er International Sports Management.
Loks mætti geta að Howell vinnur af og til sem golffréttaskýrandi fyrir Sky Sports. Hann er á mjög góðum auglýsingasamningi hjá Titleist og er meðal fárra kylfinga á Evróputúrnum sem notar Titleist DT Solo boltann vegna spinn-sins sem hann fær á boltann í kringum flatirnar. Spurning hvort Titleist samningur Howell verður endurnýjaður þegar hann fer svona illa með Titleist-erfingjann sjálfann Peter Uihlein? 🙂
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



