Afmæliskylfingur dagsins: Ingvar Andri Magnússon – 29. september 2013
Það er meistarinn í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ 2013, Ingvar Andri Magnússon, sem er afmæliskylfingur dagsins.
Ingvar Andri er fæddur 29. september 2000 og á því 13 ára afmæli í dag!!! Ingvar Andri er í Golfklúbbi Reykjavíkur og að öðrum ólöstuðum einn alefnilegasti kylfingur landsins. Hann hefir staðið sig framúrskarandi vel á Íslandsbankamótaröðinni í sumar og þannig varð hann stigameistari með 8855 stig í strákaflokki.
Ingvar Andri varð í 4. sæti á Íslandsbankamótaröðinni á 1. móti ársins í Þorlákshöfn; hann sigraði eftir bráðabana á Hellu á 2. mótinu; hann varð í 2. sæti á 3. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, Íslandsmótinu í holukeppni á Leirdalsvelli; Ingvar Andri varð í 2. sæti á 4. mótinu á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ; hann varð síðan í 4. sæti á Jaðrinum á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar; hann varð í 2. sæti á Íslandsmótinu í höggleik í strákaflokki og á 7. og síðasta mótinu í Grafarholtinu varð Ingvar Andri í 2. sæti. Allt þetta meðan hann var enn 12 ára – og að keppa við stráka allt að því 2 árum eldri!!!
Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Ingvar Andra með því að SMELLA HÉR:
Komast má á facebook síðu Ingvars Andra hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið ……
-
Ingvar Andri Magnússon, GR (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941 (72 ára); Vicky Fergon, 29. september 1955 (58 ára) , sigraði CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum tíma; Kelly Robbins, 29. september 1969 (44 ára); Tina Fischer, Bad Nauheim, Þýskalandi, 29. september 1970 (43 ára) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

