LET: Burke og Klatten leiða í Frakklandi eftir 1. dag
Það eru enski kylfingurinn Hannah Burke og „heimakonan“ Joanna Klatten sem leiða eftir 1. dag Lacoste Ladies Open í Frakklandi.
Báðar léku þær á 6 undir pari, 64 höggum.
Þriðja sætinu deila þær Charley Hull og Stacy Lee Bregman aðeins 1 höggi á eftir á 65 höggum.
Í 5. sæti enn öðru höggi á eftir eru heimakonurnar Jade Schaeffer og Anne-Lise Caudal, hin spænska Carlota Ciganda og hin ítalska Diana Luna.
Hitinn fór allt upp í 30°C í Saint-Jean-de-Luz, í suð-vestur Frakklandi í dag og var ferlega heitt að spila á þessum upphafsdegi Lacoste mótsins í Chantaco golfklúbbnum..
Burke sem er í efsta sæti sagði m.a. eftir hringinn: „Ég náði nokkrum góðum (fuglum). Það var fullt af færum. En pinnastaðsetningarnar voru svolítið snúnar og maður varð að passa sig.“
Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Lacoste Ladies Open í Frakklandi SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
