Ragnheiður Jónsdóttir | september. 15. 2013 | 14:55

Afmæliskylfingur dagsins: Kevin Na ————- 15. september 2013

Það er Kevin Sangwook Na (á kóreönsku: 나상욱 og hanja: 羅相昱) sem er afmæliskylfingur dagsins. Na er fæddur 15. september 1983 og á  því 30 ára stórafmæli í dag!!! Na komst í fréttirnar í maí 2012 á the Players vegna endalauss vaggs þ.e. margendurtekinna æfingasveiflna áður en boltinn varr sleginn og var átalinn fyrir hægagang í golfinu. Hann hratt af stað heilmikilli herferð gegn hægum leik í golfi.

Að öðru leyti er Kevin Na mjög sérstakur kylfingur og var talið að hann hefði farið á taugum á lokahringnum á Players eftir að hafa verið í forystu mestallt mótið vegna áhorfenda sem púuðu á hann þegar hann „vaggaði“; söngluðu NaNaNa hvert sem Kevin Na fór o.s.frv.

Sjá má  grein Golf 1 í greinaflokknum: Hver er kylfingurinn? um Kevin Na með því að SMELLA HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Karsten Solheim 15. september 1911 (hefði orðið 102 ára í dag);  Fulton Peter Allem 15. september 1957 (56 ára); Shi Hyun Ahn (á kóreönsku:  안시현) 15. september 1984 (29 ára)   ….. og …..

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is