Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn og Wake Forest í 7. sæti á Cougar Classic
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest, Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og golflið Furman og Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG luku leik í gær á Cougar Classic mótinu.
Leikið var í Yeamans Hall, Hanahan í Suður-Karólínu. Keppendur voru 108 frá 20 háskólum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék hringina 3 á samtals 226 höggum (75 76 75) og var á 4. besta skorinu í golfliði Wake Forest og taldi það því. Í einstaklingskeppninni varð Ólafía Þórunn í 50. sæti. Í liðakeppninni varð Wake Forest í 7. sæti.
Ingunn Gunnarsdóttir lék hringina 3 á samtals 233 höggum (76 78 79) og var einnig á 4. besta skori í golfliði Furman og taldi það því. Í einstaklingskeppninni varð Ingunn í 83. sæti. Í liðakeppninni varð Furman í 16. sæti.
Berglind Björnsdóttir lék hringina 3 á samtals 232 höggum (76 74 82) og var á besta skori í liði sínu, UNCG. Í einstaklingskeppninni hafnaði Berglind í 80. sæti og í liðakeppninni varð UNCG í 19. sæti.
Næstu mót sem golflið þeirra Ólafíu Þórunnar, Ingunnar og Berglind artaka þátt í eru 20. september n.k.
Til þess að sjá úrslitin á Cougar Classic SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
