Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1 Eimskipsmótaröðin (4): Valdís Þóra jöfn Guðrúnu Brá í efsta sæti fyrir lokahringinn
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, Íslandsmeistari í höggleik 2012, jafnaði í dag við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttir, GK á 3. og næstsíðasta hring Íslandsmótsins.
Valdís Þóra var á besta skori dagsins í kvennaflokki ásamt Sunnu Víðisdóttur, GR, en báðar léku þær Korpuna á 1 undir pari.
Valdís Þóra og Guðrún Brá hafa báðar spilað á samtals á 5 yfir pari, 221 höggi; Valdís Þóra (77 73 71) og Guðrún Brá (71 75 75).
Fyrir lokaholuna í dag var Guðrún Brá jafnvel 1 höggi á eftir Valdísi Þóru, en hún fékk glæsilegan fugl á 18. holu og tókst að jafna.
Í 3. sæti er Sunna Víðisdóttir, GR, á samtals 7 yfir pari, 223 höggum (82 70 71). Í 4. sæti er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR á samtals 9 yfir pari og í 5. sæti er Anna Sólveig Snorradóttir, GK, á samtals 11 yfir pari.
Til þess að sjá stöðuna í kvennaflokki fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá myndir frá 3. mótsdegi Íslandsmótsins í höggleik SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
