GR: Korpan opnar sem 27 holu golfvöllur á morgun!
Á morgun, þann 15. júní 2013, verður Korpúlfsstaðavöllur formlega opnaður sem 27 holu völlur. Þetta er stór dagur í sögu Golfklúbbs Reykavíkur og stór dagur í íslenskri golfsögu. Þeir í GR ætla að vígja völlinn með innanfélagsmóti, þar sem veitt verða glæsileg verðlaun.
Eins og áður hefur verið kynnt þá hafa lykkjurnar þrjár á nýja Korpuvellinum fengið nöfnin Sjórinn (1.-9.), Áin (10.-18.) og svo Landið (19.-27.). Þeir hlutar sem verða spilaðir í Vígslumóti GR eru Landið og Áin. Svo geta þeir aðilar sem ekki taka þátt í mótinu bókað 9. holur á Sjónum. Kylfingar þurfa að skrá sig til leiks á þeim hluta.
Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur og punktakeppni. Ræst er út frá kl.8:00. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 holum vallarins.
Skráning í mótið hófst miðvikudaginn 12. júní kl.10:00 á www.golf.is og í síma 585-0200. Mótsgjald er 2.700 kr.
Verðlaun:
Karlaflokkur – punktakeppni:
1. sæti = GR merkt peysa og bolur
2. sæti = GR merkt peysa
3. sæti = GR merktur bolur
Kvennaflokkur – punktakeppni:
1. sæti = GR merkt peysa og bolur
2. sæti = GR merkt peysa
3. sæti = GR merktur bolur
Höggleikur:
1. sæti = GR merkt peysa og bolur
Nándarverðlaun:
13. braut = GR merktur bolur
17. braut = GR merktur bolur
22. braut = GR merktur bolur
25. braut = GR merktur bolur
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
