Axel Bóasson, GK. Mynd: Golf 1.
Axel og Guðmundi Ágúst gengur vel á St. Andrews Links Trophy
Axel Bóasson, GK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR taka þátt í St. Andrews Links Trophy 2013, í Skotlandi.
Þátttakendur eru 144 víðsvegar úr heiminum og var leikið á Jubilee vellinum í dag. St. Andrews Links Trophy er eitt sterkasta áhugamannamót í heimi í golfinu. Margir þekktir kylfingar tóku á sínum tíma þátt í mótinu þ.á.m.: Ernie Els, Lee Westwood, Trevor Immelman, Geoff Ogilvy, Pádraig Harrington, Justin Rose og Rory McIlroy.
Á fyrsta degi lék Guðmundur Ágúst á 5 yfir pari, 77 höggum og er sem stendur í 97. sæti. Hann fékk 2 fugla, 2 skolla og 2 skramba á hring sínum í dag.
Axel hefir ekki enn lokið leik en eftir 9 holur er hann í 22. sæti og spennandi að sjá hvar hann lendir á skortöflunni að lokum. Glæsilegur árangur!
Til þess að fylgjast með stöðunni á St. Andrews Links Trophy 2013 SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
