Guan spilar á St. Jude Classic
Styrktaraðilar keppast við um að bjóða hinum 14 ára Guan Tianlang undanþágur um að spila í mótum sínum.
Það nýjasta er að hann hefir þegið boð styrktaraðila um að spila í Fedex St. Jude Classic mótinu, sem fram fer 6.-9. júní á TPC Southwind í Memphis, Tennessee.
Þetta þýðir að Guan spilar í 2 PGA Tour mótum í röð, en tilkynnt var fyrr í vikunni um að hann hefði fengið sérstakt boð frá sjálfum Jack Nicklaus um að spila í móti þess síðarnefnda, The Memorial, í Ohio í næstu viku.
„Að bjóða Guan var „no-brainer“ (þ.e. það þurfti ekki mikla umhugsun að bjóða Guan í mótið),” sagði mótsstjóri St. Jude Classic Phil Cannon í fréttatilkynningu. „Hann hefir svo sannarlega vakið mikla athygli í íþróttaheiminum. Og við erum spenntir yfir því að áhangendur okkar fá að verða vitni að sögulegum leik (hans).“
Mótið verður 5. PGA Tour mótið Guan í ár (en til gamans má geta að Guan fær ekki einu sinni að taka þátt í nokkrum mótum í Kína vegna þess að hann er ekki nógu gamall!!! 🙂 )
Ferill hans í mótunum sem hann hefir tekið þátt í á PGA Tour, það sem af er, er einkar glæsilegur en hann komst s.s. allir muna í gegnum niðurskurð á the Masters risamótinu, yngstur allra og síðan einnig í Zurich Classic áður en hann komst ekki í gegnum niðurskurð í síðustu viku á HP Byron Nelson Championship.
Það verður gaman að fylgjast með Guan á The Memorial og síðan á St. Jude´s, vikuna þar á eftir!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
