Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn lauk keppni í 8. sæti á NCAA svæðamótinu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR og golflið Wake Forest tóku þátt í NCAA Central svæðamótinu, sem fram fór í Jimmie Austin OU Golf Club, í Austin, Oklahoma dagana 9.-11. maí 2013. Mótinu lauk í gær. Þátttakendur voru 126 frá 24 háskólum.
Ólafía Þórunn lék 3. hringinn sinn í gær á glæsilegum 3 undir pari pari, 69 höggum og var með 6 fugla, 10 pör, 1 skolla og 1 skramba.
Ólafía Þórunn var á besta skori golfliðs Wake Forest og lauk keppni í 8. sæti einstaklingskeppninnar á samtals 215 höggum (72 74 69).
Golflið Wake Forest lauk keppni í 14. sæti í liðakeppninni og komst því ekki í landsmótið, en aðeins efstu 8 háskólarnir komust áfram í þá keppni.
Með glæsiárangri sínum er Ólafía Þórunn hins vegar búin að tryggja sér þátttökurétt í einstaklingskeppni landsmótsins, en 2 efstu kylfingar í þeim háskólum sem ekki komust á landsmótið hljóta þátttökurétt. Landsmótið fer fram í Georgíu 21.-24. maí n.k. og er mótið eitt sterkasta áhugamannamót, sem haldið er ár hvert.
Til þess að sjá úrslit á NCAA svæðamótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
