Heimslistinn: Ernst upp um 1084 sæti
Nýliðinn á PGA Tour, Derek Ernst, 22 ára, er svo sannarlega hástökkvari vikunnar á heimslistanum, sem birtur var í gær. Ernst var nr. 1207 á heimslistanum, en fór upp um 1084 sæti í 123. sætið!
Fyrir sigurinn á Wells Fargo mótinu fær hann auk stórbættrar stöðu á heimslistanum, meira en 100 milljónir íslenskra króna fyrir sigurinn, keppnisrétt í 2 ár á PGA Tour, auk þátttökuréttar á WGA-Bridgestone mótið, PGA Championship mótið, Tournament of Champions og the Masters risamótið 2014.
Ástralinn Brett Rumford var nr. 237 á heimlistanum fyrir 2 vikum en eftir 2 sigra í röð á Evrópumótaröðinni er hann nú lentur í 76. sætinu.
Litlar breytingar eru meðal efstu 10 á heimslistanum, Tiger enn efstur og röð annarra heldur sér að mestu, nema hvað Phil Mickelson hafði sætaskipti við Matt Kuchar, er nú í 10. sæti en Kuchar dottinn niður um 1 sæti er í 11. sæti.
Staða efstu manna á heimslistanum er eftirfarandi:
1. Tiger
2. Rory McIlroy
3. Adam Scott
4. Justin Rose
5. Luke Donald
6. Brandt Snedeker
7. Louis Oosthuizen
8. Graeme McDowell
9. Steve Stricker
10. Phil Mickelson
Til þess að sjá heimslistann í heild SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
