Bandaríska háskólagolfið: Sunna lauk leik á SoCon Championships í 9. sæti – Berglind og UNCG urðu í 3. sæti
Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Sunna Víðisdóttir, GR og Elon luku í dag leik á Southern Conference Championship, í Hilton Head, Suður-Karólínu. Mótið stóð dagana 14.-16. apríl 2013. Þátttakendur voru 50 frá 10 háskólum
Sunna varð í 9. sæti í einstaklingskeppninni, sæti sem hún deildi með Alexu Rancourt frá Furman háskólanum (þar sem Ingunn Gunnarsdóttir, GKG, er við nám, en hún tók ekki þátt í mótinu). Sunna var á samtals 12 yfir pari, 228 höggum (72 77 79). Hún var á 2. besta skori í liði sínu og taldi því skor Sunnu í árangri Elon sem lauk keppni í 6. sæti í liðakeppninni.
Berglind bætti sig með hverjum hring en fór upp úr 25. sætinu í það 19. sem hún deildi með tveimur öðrum. Berglind lék samtals á 17 yfir pari, 233 höggum (80 77 76) og var á fjórða besta skori í liði sínu. Árangur Berglindar taldi því í glæsiárangri liðsins í liðakeppninni, en UNCG varð í 3. sæti!!!
Til þess að sjá úrslitin á SoCon Women´s Golf Championship SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

