Nýju stúlkurnar á LET 2013: Louise Larsson – (40. grein af 43)
Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt kanadíska frægðarhallarkylfingnum Lori Kane, sem spilar á LET á undanþágu.
Auk þess hafa allar stúlkur verið kynntar, sem höfnuðu í sætum 5-30 í Lalla Aicha Tour School 2013. Nú er það sú sem varð í 4. sæti:
Fullt nafn: Louise Larsson.
Ríkisfang: sænsk.
Fæðingardagur: 30. júlí 1990 (22 ára)
Fæðingarstaður: Karlstad, Svíþjóð.
Er félagi í: Karlstad GC í Svíþjóð.
Byrjaði í golfi: 6 ára en fór ekki að keppa fyrr en 10 ára.
Helstu áhrifavaldar í golfinu: Foreldrarnir – Eins á Louise systur, Caroline, sem spilar keppnisgolf þó hún hafi misst lærið vegna krabbameins í því 2011.
Þjálfari: Fredrik Eliasson. Louise var samt áður hjá Henri Reis, Björn Persson og Robert Perman.
Áhugamál: Að spila á flautu, squash, skíði og badminton.
Heimasíða: SMELLIÐ HÉR:
Hápunktar á áhugamannsferli: Á vallarmetið á Mellerud, 8 undir pari, 63 högg, en þar var hún með 29 högg á síðustu 9 holunum. Louise var í sigurliði Svíþjóðar í European championships í La Manga Club árið 2010. Hún var einnig í liði Svíþjóðar sem tók bronskið áWorld Championships in Argentínu, 2010.
Atvinnumennskan: Á fyrsta ári sínu á LET, 2011 varð hún þrisvar sinnum T-17 þ.e. á UNIQA Ladies Golf Open, Open de Espana Femenino og Omega Dubai Ladies Masters. Louise varð í 65. sæti á peningalistanum með € 35,433.19 úr 18 mótum. Í fyrra, 2012, á 2. ári sínu á LET spilaði Louise í 20 mótum, en náði aðeins niðurskurði í 10 þeirra. Besti árangurinn var T-11 á Deloitte Ladies Open í Hollandi. Verðlaunaféð var miklu mun lægra í fyrra, „aðeins“ €19,711.15 og Louise fór aftur í Q-school 2013, en með þessum líka flotta árangri!
Staðan í Lalla Aicha Tour School 2013: 4. sætið!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

