Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2012 – en mótið fór fram á Strandarvelli – Hellu. Mynd: Golf 1 Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State luku leik í 2. sæti
Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2012, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og golflið Texas State léku nú í vikunni á Challenge mótinu í Onion Creek, í Austin, Texas. Mótið fór fram dagana 1.-2. apríl 2013 (þ.e. s.l. mánudag/þriðjudag – Einhverra hluta vegna fórst fyrir að birta úrslitin fyrr hér á Golf1.is og er beðist afsökunar á því).
Þátttakendur vou 68 frá 13 háskólum.
Valdís Þóra lauk leik T-28, þ.e. jöfn 3 öðrum kylfingum í 28. sæti í einstaklingskeppninni. Valdís Þóra lék á samtals 15 yfir pari, 225 höggum (77 74 74) og var á 4. besta skori í liði Texas State, sem hafnaði í 2. sæti í liðakeppninni. Skor Valdísar Þóru taldi því í glæsiárangri „The Bobcats“, golfliðs Texas State!!!
Næsta mót Valdísar Þór og Texas State er WAC sem fram fer 23.-25. apríl n.k.
Til þess að sjá lokastöðuna í Challenge mótinu, í Onion Creek SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
