Caroline verður kaddý hjá Rory á par-3 holu mótinu á Masters
Við munum sjá Caroline Wozniacki í einum af þessum herfilega ólekkeru hvítu kaddýsamfestingum á Masters 2013, en hún hefir samþykkt að vera kylfuberi kæresta síns Rory McIlroy á par-3 holu mótinu, sem er undanfari aðalmótsins.
Það er ekki heillavænlegt fyrir Rory að reyna að heilla hana Caroline sína með sigri í par-3 mótinu, því það hefir aldrei gerst að sigurvegari þess móts hafi síðan unnið aðalmótið.
Þrátt fyrir slæmt gengi á undanförnum mánuðum er Rory bara hress. Hann var á 67 höggum á Texas Valero Open í gær og skaust upp um 40 sæti á skortöflunni í 5. sætið. Síðan sagði hann á blaðamannafundi í Texas um þátttöku sína í Masters sem framundan er: „Það er ágætt, já alveg ágætt að fara inn í fyrsta risamót ársins eftir að hafa sigrað síðasta risamót ársins, árinu á undan!“ Sjálfstraustið er hægt og bítandi að koma aftur.
Fáir eða nokkrir hafa verið teknir jafn rækilega undir smásjánna og Rory þegar hann brotnaði niður í Masters 2011. En hann svaraði með því að sigra á næsta risamóti Opna bandaríska á Congressional með 8 högga mun á næsta mann, Jason Day, sem er mesti munur í sögu mótsins, auk þess sem hann sló fjölda annarra meta.
Um það sagði Rory: „Með allri sanngirni þá er hægt að segja að þegar leikur minn hefir verið dreginn í efa hef ég svarað með sigri. Í 2 síðustu skiptin sem ég hef sigrað á risamótum hefir það verið þannig. Ég varð fyrir gangrýni og fólk dró í efa getu mína eftir hvað gerðist á Masters (en þá var Rory 21 árs) þannig að þegar ég hóf leik á Opna bandaríska var spurningin hvort ég hefði réttu innstillinguna eða andlegu hörkuna til þess að klára risamót. Jafnvel á síðasta ári var ég í svolítilli lægð áður en ég fór í PGA Championship, en það jafnaði sig fljótlega. Þetta er sama staðan og fyrir Masters í næstu viku. Kannski er þetta tákn um eitthvað gott en ég myndi ekki vilja fara inn í hvert risamót strögglandi, það væri ekki gott ,“sagði Rory brosandi!
Sigri Rory á Masters nú í ár verður hann yngsti sigurvegari mótsins frá því Tiger vann það 1997 og þá á hann bara eftir sigur í Opna breska til þess að fullkomna risamótsfernuna.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

