LPGA: 3 leiða á Kraft Nabisco
Í gær hófst fyrsta risamót kvennagolfsins: Kraft Nabisco Championship. Að venju er spilað á Dinah Shore Championship golfvellinum í Mission Hills kántrí klúbbnum í Rancho Mirage, í Kaliforníu.
Eftir 1. dag eru 3 kylfingar efstir og jafnir: þær NY Choi, norska frænka okkar Suzann Pettersen og enska stúlkan Jodi Ewart Shadoff, sem varð nr. 1 á úrtökumóti Q-school LPGA árið 2012. Allar eru þær búnar að spila á 4 undir pari, 68 höggum.
Jafnar í 4. sæti eru Amy Yang frá Suður-Kóreu og hin sænska Anna Nordqvist, báðar höggi á eftir, á 3 undir pari, 69 höggum.
Ellefu kylfingar eru síðan í 6. sæti á 2 undir pari, 70 höggum þ.á.m. Jessica Korda, Angela Stanford og Inbee Park.
Af öðrum áhugaverðum kylfingum mætti geta að nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna Stacy Lewis er í T-44 á 1 yfir pari; fyrrum nr. 1 á heimslistanum Yani Tseng er T-23 þ.e. deilir 23. sætinu ásamt 20 öðrum kylfingum, þ.á.m. Michelle Wie og Lydiu Ko, sem allar eru búnar að spila á sléttu pari.
Til þess að sjá stöðuna á Kraft Nabisco í heild eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
