Nýju strákarnir á PGA 2013: Brad Fritsch – (19. grein af 26)
Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013.
Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 17.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1.
Nú er komið að 3 strákum sem deildu 7. sætinu: Erik Compton, Brad Fritsch og Jin Park. Við byrjuðum á Jin Park í gær og í dag er það Brad Fritsch.
Brad Fritsch fæddist 9. nóvember 1977 í Edmonton, Albert, í Kanada og er því 35 ára. Hann ólst upp í Ottawa í Ontario.
Fritsch spilaði á kanadíska túrnum á árunum 2001-2006 og aftur frá 2010-2011. Besti árangur hans er 2. sætið á Bay Mills Open Players Championship.
Fritsch spilaði á Web.com Tour á árunum 2007-2009 og í fyrra, 2012. Þar var besti árangur hans T-2 á Mylan Classic, 2012.
Fritsch fékk kortið sitt á PGA Tour með því að vera á topp-25 á peningalista Web.com Tour. Hann bætti samt stöðu sína á PGA Tour umtalsvert með því að fara í Q-school og landa T-7 árangri!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
