Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og félagar í 4. skipti í 1. sæti í vetur!!!
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og golflið Faulkner háskólans í Alabama, „The Eagles“ eru svo sannarlega að gera góða hluti!!!
Dagana 24.-26. mars s.l. tóku Hrafn og félagar þátt í Emmanuel College Invitational í Hartwell, Georgíu og varð liðið í 1. sæti!!! Þetta er í 4. skipti í vetur sem liðið hafnar í 1. sætinu!!! Þátttakendur í mótinu voru 51 frá 9 háskólum.
Lið Faulkner háskóla hafði algera yfirburði; var 14 höggum betra en liðið í 2. sæti, gestgjafarnir í Emmanuel College í Georgiu. Samtals var lið Faulkner á 15 yfir pari, 591 höggi (298 293).
Liðsfélagi Hrafns, Daniel Jansen varð í 1. sæti í einstaklingskeppni mótsins, en Hrafn var á 2. besta skori liðsins samtals á 8 yfir pari, 152 höggum (72 80) og taldi skor hans því í glæsiárangri liðsins!!! Hrafn deildi 10. sæti í mótinu.
Til þess að sjá umfjöllun á heimasíðu Faulkner háskólans um árangur golfliðsins SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá úrslitin á Emmanuel College Invitational SMELLIÐ HÉR:
Næsta mót Hrafns og „The Eagles“ er Natural State Golf Classic sem fram fer í Heber Springs 6. apríl n.k.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
