Heimslistinn: Kevin Streelman fer úr 205. í 74. sætið á heimslistanum
Litlar breytingar eru á toppi heimslistans í þessari viku – reyndar er allt óbreytt meðal efstu 10. Í efsta sæti er sem fyrr Rory McIlroy, Tiger er í 2. sæti, Luke Donald saxar aðeins á forskot Rory, eftir 4. sætis árangur á Tampa Bay Championship í gær, en er enn í 3. sæti; í 4. sæti er Brandt Snedeker, Justin Rose er í 5. sæti; Louis Oosthuizen í 6. sæti; Adam Scott í 7. sæti; Steve Stricker í 8. sæti; Matt Kuchar í 9. sæti og Phil Mickelson í 10. sæti.
Kevin Streelman, sá sem sigraði á Tampa Bay Championship á PGA mótaröðinni, tekur gott stökk upp heimslistans, var í 205. sæti eftir Puerto Rico Open fyrir viku síðan, en eftir sigurinn í gær er hann kominn á topp-100 þ.e. í 74. sætið!!!
Thomas Aiken, frá Suður-Afríku, sem sigraði á Avantha Master, samvinnuverkefni Evrópumótaraðarinnar og Asíutúrsins tekur sömuleiðis vænt stökk upp heimslistann var í 129. sæti heimslistans eftir Tshwane Open en er líkt og Streelman kominn á topp-100, þ.e. í 90. sætið!!!
Til þess að sjá heimslistann í heild SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
