Stacy Lewis LPGA: Stacy Lewis sigraði á RR Donneley – er komin í 1. sæti Rolex-heimslistans
Það var bandaríska stúlkan Stacy Lewis sem átti glæsilegan lokahring á RR Donneley LPGA, lék á 8 undir pari, 64 höggum og tryggði sér þar með sigurinn í mótinu og átti 3 högg á næsta keppinaut sinn, Ai Miyazato, sem búin var að leiða mestallt mótið. Á hringnum góða fékk Lewis 9 fugla, 8 pör og 1 skolla.
Samtals spilaði Lewis á 23 undir pari, 265 höggum (68 65 68 64). Við þennan glæsisigur er Lewis komin í 1. sæti Rolex-heimslistans og veltir þar með úr sessi Yani Tseng, frá Taiwan, sem búin er að tróna á toppnum í samfellt 109 vikur.
Í 2. sæti var sem segir hin japanska Ai Miyazato á samtals 20 undir pari, 268 höggum (63 67 67 71).
Lewis bar sigur úr býtum eftir dramatík á síðustu holunum. Hún fékk fugl á 3 af síðustu 4 holunum meðan að Ai fékk skramba á 16. holu.
„Þetta er ótrúlegt“ sagði Lewis eftir sigurinn. „Við börðumst fram og aftur og ég bjóst ekki við þessu. Ég var bara að reyna að fá fugla þarna í lokin.“
Sigurinn hafðist tveimur dögum eftir að kylfusveinn Lewis, sem var að testa sandglompu olli því að Lewis fékk 2 högg í víti fyrir þetta athæfi sitt.
Cristie Kerr er eini bandaríski kvenkylfingurinn, sem hefir tekist að landa 1. sætinu á heimslistanum fram til þessa og Stacy viðurkenndi að það að vera heimsins besti kvenkylfingur „hljómaði býsna vel!“
Til þess að sjá úrslitin á RR Donnelley LPGA Founders Cup 2013 SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
