Nýju strákarnir á PGA Tour 2013: Taggart Ridings (7. grein af 26)
Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013.
Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Að þessu sinni voru 5 kylfingar jafnir í 22. sætinu, þeir: Constable Jr., Bobby Gates, Henrik Norlander, Chez Reavie og Patrick Reed og alls 26 sem hlutu kortið á PGA Tour, sem marga dreymir um. Framangreindu 5 kylfingar hafa nú allir verið kynntir og komið að þeim tveimur sem deildu 20. sætinu Si Woo Kim frá Suður-Kóreu, sem kynntur var í gær og Taggart (alltaf kallaður Tag) Ridings, sem kynntur verður í dag.
Taggart Twain Ridings fæddist 7. september 1974 í Oklahoma City, Oklahoma og er því 38 ára.
Það var pabbi Tag, sem er golfkennari í South Lakes golfklúbbnum í Jenks, Oklahoma, sem kom stráknum sínum af stað í golfinu. Tag spilaði með golfliði University of Arkansas og útskrifaðist 1997 með gráðu í markaðsfræðum. Seinna þetta sama ár gerðist hann atvinnumaður í golfi.
Tag Ridings hefir spilað á Nationwide Tour og PGA Tour frá árinu 2002 og hefir unnið sér inn yfir $1 milljón dollara í verðlaunafé þó hann hafi sjaldnast verið meðal þeirra efstu á skortöflunni. Jafnvel þó hann hafi aldrei unnið PGA Tour mót þá er besti árangur hans T-2 árangur á Michelin Championship í Las Vegas, árið 2004. Besta keppnistímabil Tag á PGA Tour var 2005 — þá varð hann í 91. sæti á peningalistanum með verðlaunafé upp á næstum $900,000.
Nokkrar einskinsnýtar staðreyndir um Tag Ridings:
Hann hefir náð því að fara holu í höggi í móti í Shoal Creek GC, en týndi boltanum sínum 2 holum síðar.
Tag Ridings segir Gary Player vera fyrirmynd sína í golfinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
