Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon luku leik í 9. sæti á JMU Eagle Landing mótinu í Flórída
Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon luku í gær leik á JMU/Eagle Landing Invite, í Orange Park, Flórída.
Spilað var í Eagle Landing golfklúbbnum í Orange Park, Flórída og má skoða heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:
Völlurinn er 7037 yarda par-72 hannaður af Clyde Johnston. Þátttakendur í mótinu voru 97 frá 17 háskólum.
Sunna og golflið Elon luku leik í 9. sæti í mótinu, sem hljóta að vera vonbrigði því báða dagana þar áður var Elon búið að vera í 2. sæti í mótinu.
Í einstaklingskeppninni lék Sunna á samtals 19 yfir pari, 235 höggum (77 74 84) varð T-58 og átti afar slakan lokahring líkt og allar í liði Elon. Hún varð hins vegar eftir sem áður, líkt og báða dagana þar á undan á 4. besta skori liðsins og taldi það því í árangri Elon í liðakeppninni.
Næsta mót Sunnu og Elon er UNCW Seahawk Classic mótið í Wallace, Norður-Karólínu 6.-7. apríl n.k.
Til þess að sjá úrslitin á JMU/Eagle Landing mótinu í Flórída SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
