Nýju strákarnir á PGA Tour 2013: Si-Woo Kim – (6. grein af 26)
Hér verður fram haldið með að kynna efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013.
Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Að þessu sinni voru 5 kylfingar jafnir í 22. sætinu, þeir: Constable Jr., Bobby Gates, Henrik Norlander, Chez Reavie og Patrick Reed og alls 26 sem hlutu kortið á PGA Tour, sem marga dreymir um. Framangreindu 5 kylfingar hafa nú allir verið kynntir og komið að þeim tveimur sem deildu 20. sætinu Si Woo Kim frá Suður-Kóreu, sem verður kynntur í dag og Taggart (alltaf kallaður Tag) Ridings, sem kynntur verður á morgun.
Si Woo Kim fæddist 28. júní 1995 í Seúl, Suður-Kóreu og var því 17 ára þegar hann náði kortinu sínu á PGA, yngstur allra sem það hefir tekist! Hann hlýtur samt ekki þátttökurétt á PGA Tour fyrr en á 18 ára afmælisdegi sínum þ. 28. júní n.k. sbr. m.a. grein Golf1 þar um SMELLIÐ HÉR:
Si Woo Kim er enn í menntaskóla þ.e. Shinsung menntaskólanum í Suður-Kóreu, en þaðan útskrifast hann á næsta ári, 2014.
Nokkrar staðreyndir um þennan unga suður-kóreanska pilt sem kominn er á PGA:
Ef það væru spiluð kynningarlög fyrir kylfinga á 1. teig myndi lagið hans vera „Gangnam Style.“.
Uppáhaldsvefsíðan hans er youtube.com.
Uppáhaldshljómsveitin hans er Girls Generation.
Uppáhaldsíþróttamaður hans er Park Ji-Sung, sem talinn er einn af fremstu fótboltaleikmönnum Suður-Kóreu.
Í draumaholli Si-Woo myndu vera: Tiger Woods, Rory McIlroy og Luke Donald.
Si-Woo Kim er alltaf með íþróttadrykki í golfpokanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
