LPGA: Stacy Lewis heldur forystunni í Thaílandi eftir 2. dag Honda LPGA Classic
Bandaríski kylfingurinn Stacy Lewis er enn í forystu eftir 2. keppnisdag Honda LPGA Classic mótsins, sem hófst í gær á Pattaya Old Course í Síam CC, í Chonburi, Thaílandi.
Stacy Lewis er samtals búin að spila á 12 undir pari, 132 höggum (63 69). Í dag fékk Lewis 5 fugla, 11 pör og 2 skolla.
Næst á eftir Lewis, í 2. sæti, kemur heimakonan Ariya Jutanugarn, sem sigraði svo glæsilega á lokaúrtökumóti Q-school LET þ.e. Lalla Aicha Tour School 2013 í Marokkó (Golf 1 er að kynna „Nýju stúlkurnar á LET“ og verður Ariya, sigurvegarinn, kynntur í lokagreininni þ.e. þeirri 43. af 43 sem birtar verða). Ariya er búin að spila á 9 undir pari, 135 höggum (69 66) í Honda LPGA Classic mótinu og er eins og áður segir á heimavelli.
Þriðja sætinu deila spænski kylfingurinn Beatriz Recari, So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu og hin skoska Catriona Matthew, en allar eru þær búnar að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum, hver.
Af öðrum einstökum kylfingum mætti geta að Lydia Ko deilir 9. sæti með 3 öðrum kylfingum, sem allar hafa spilað á samtals 4 undir pari, 140 höggum, hver.
Lexi Thompson og „norska frænka okkar“ Suzann Pettersen eru meðal 5 kylfinga, sem deila 13. sætinu sem stendur en allar er þær búnar að spila á samtals 3 undir pari, 141 höggi, hver.
Sú sem á titil að verja Yani Tseng er í hópi 8 kylfinga (sem í eru m.a. Cristie Kerr og Sandra Gal) og deila 25. sætinu, en allar í þeim hópi hafa spilað á samtals 1 undir pari, 143 höggum hver. Í þessum 8 kylfinga hópi er líka franska stúlkan Karine Icher, sem átti afleitan hring upp á 77 högg í morgun og hrundi niður skortöfluna úr 2. sætinu, sem hún var í, í gær, en eftir 1. dag var hún á 66 höggum og því 11 högga munur milli daga.
Á þessu sést að skammt er stórra högga á milli og margt getur enn gerst, því allt opið og spennandi helgi framundan í kvennagolfinu!
Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Honda LPGA Classic 2013 SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
