Evróputúrinn: Nokkrar staðreyndir um sigur Chris Wood á Qatar Masters
Englendingurinn Chris Wood sigraði nú fyrir stuttu á Commercial Bank Qasters Masters 2013. Hér fara nokkrar staðreyndir um sigurinn og hvað hann inniber:
Þetta er fyrsti sigur Chris Wood í 116. mótum, sem hann hefir tekið þátt í.
Með sigrinum fer Chris í 4. sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar eftir að hafa hlotið sigurtékkann upp á € 314,598.
Chris Wood fer á topp-60 á heimslistanum úr 142. sætinu.
Sigurinn er besti árangur Chris Wood á Evrópumótaröðinni. Þar áður var 2. sætið á Iberdrola Open 2011 og Sicilian Open, 2012 besti árangurinn. Chris Wood var líka T-2 á Africa Open 2011.
Chris Wood er annar kylfingurinn á 2013 keppnistímabilinu á Evrópumótaröðinni, sem er að vinna sinn fyrsta sigur á mótaröðinni; næstur á eftir Scott Jamieson (sem vann Nelson Mandela Championship styrkt af ISPS Handa).
Sigur Wood kemur eftir að hann hefir tekið þátt í 4 Commercial Bank Qatar Masters mótum.
Besti árangur Wood í Commercial Bank Qatar Masters fram til dagsins í dag var T-14 árangur 2010.
Þetta er í 3. skiptið sem Wood hefir verið í forystu fyrir lokahring á Evrópumótaröðínni en í fyrsta sinn sem hann hefir fylgt því eftir með sigri. Hin tvö skiptir sem hann var í forystu fyrir lokahringinn voru á BMW PGA Championship 2010 og á Iberdrola Open, 2011. Hann varð T-6 á BMW PGA Championship og í 2. sæti á Iberdrola Open.
Chris Wood er fyrsti Englendingurinn til þess að sigra á Commercial Bank Qatar Masters.
Englendingar eru 9. þjóðin til að eiga fulltrúa sem sigrar á Commercial Bank Qatar Masters.
Fyrir sigurinn hafði hann 19 sinnum verið með topp-10 árangra á Evrópumótaröðinni frá því árið 2008.
Chris Wood er nú í hópi Andrew Coltart (1998) og Rolf Muntz (2000) en þeir þrír unnu allir sína fyrstu sigra á Evrópumótaröðinni á Commercial Bank Qatar Masters.
AÐRAR STAÐREYNDIR
Chris Wood er fyrsti kylfingurinn til þess að sigra á móti með erni frá því Matteo Manassero vann Louis Oosthuizen í umspili á Barclays Singapore Open, 2012.
Chris Wood er fyrsti leikmaðurinn til þess að sigra með erni (3 höggum) á lokaholu frá því Peter Hanson tókst það á KLM Open 2012.
Wood er 2. kylfingurinn til þess að sigra á Commercial Bank Qatar Masters eftir að hafa náð erni (með 3 höggum) á lokaholunni allt frá því Retief Goosen tókst það
Þetta er 278. enski sigurinn í sögu Evrópumótaraðarinnar.
Chris Wood er 87. enski kylfingurinn til þess að sigra á Evrópumótaröðinni.
Wood er fyrsti Englendingurinn sem sigrar á Evrópumótaröðinni á 2013 keppnistímabilinu.
England er eina landið sem unnið hefir 1 sinni á ári á hverju keppnistímabili á Evrópumótaröðinni.
Chris Wood hlýtur 2 ára undanþágu til þess að spila á Evrópumótaröðinni til ársloka 2015.
Chris Wood hlýtur fyrir sigurinn þátttökurétt í WGC – Bridgestone Invitational á þessu ári, 2013; á WGC – HSBC Champions 2013 og á Volvo Golf Champions, á næsta ári 2014.
Wood hlýtur mesta verðlaunafé sem hann hefir unnið á ferlinum €310,917 (um 50 milljónir íslenskra króna)
Þetta er 2. sigur Wood sem atvinnumanns.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
