Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Moritz Lampert – (23. grein af 28)
Í kvöld er komið að því að kynna fyrstan af 3 kylfingum sem deildu 4. sætinu í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á PGA Catalunya golfvöllunum í Girona á Spáni; þ.e. Þjóðverjann Moritz Lampert. Hinir tveir kylfingarnir sem deildu 4. sæti með Lampert eru Estanislao Goya frá Argentínu og Peter Erofejeff frá Finnlandi.
Moritz Lampert fæddist í 14. maí 1992 og er því 20 ára. Í Þýskalandi er hann í GC St. Leon Rot, sem mörgum Íslendingnum er að góðu kunnur. Þar byrjaði Moritz að spila golf 6 ára þegar afi hans tók hann með sér út á völl. Þegar hann varð 13 ára gerði hann sér grein fyrir að ef hann ynni hörðum höndum að því gæti hann orðið atvinnumaður. Átrúnaðargoð hans í uppvextinum, eins og hjá svo mörgum öðrum var Tiger Woods, en nú hefir Woods vikið fyrir aðdáun Moritz á landa sínum (sem hann líkist reyndar mjög) Martin Kaymer, sem hann hitti á BMW International Open.
Moritz íhugaði að spila golf í bandaríska háskólagolfinu en ákvað að gerast atvinnumaður í staðinn og er ákveðinn í að ná einhverju af 80 estu sætunum á Race to Dubai 2013. Moritz er mikill vinur Þjóðverjans Max Kieffer, sem líka spilaði á Áskorendamótaröðinni 2012 og er nú nýliði á Evrópumótaröðinni eins og Moritz.
Moritz var í raun að keppa um efsta sætið allan tímann í 6 hringja lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar, þá enn áhugamaður en gerðist atvinnumaður um leið og það lá fyrir að hann deildi 4. sætinu (uppreiknað varð hann í 6. sæti). Hann á að baki mjög farsælan feril sem áhugamaður en hann sigraði m.a. í finnska, þýska og portúgölsku meistaramótum áhugmanna 2012. Moritz tók líka þátt í Junior Ryder Cup árið 2010, en það ár vann hann meistaramót í Frakkandi og Þýskalandi í piltaflokki.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

