PGA: Russell Henley leiðir þegar Sony Open er hálfnað á Hawaii
Það er nýliðinn Russell Henley sem leiðir á Sony Open, þegar mótið er hálfnað.
Henley skilaði inn hreinu skorkorti í gær fékk 7 fugla og 11 pör. Samtals er Henley búinn að spila á 14 undir pari, 126 höggum (63 63).
„Í [jóla]fríinu átti ég ágætis hringi hér og sérstaklega eftir að ég lærði aðeins meira um vallarstjórnunina,“ sagði hinn 23 ára Henley eftir hringinn. „Ég veit alveg örugglega hvar virkar ekki [og] ég fékk svolítið sjálfstraust við það.“
„Þetta er svolítið súrrealistískt. Ég man þegar ég fékk kortið mitt [á PGA Tour] – og fjölskylda mín var þarna – og það var bara „Vá ég var að fá PGA TOUR kortið mitt,“ sagði Henley. „Það er svo erfitt [að fá kortið] – Líkurnar eru á móti manni og það var þessi Vá tilfinning, sem var ótrúleg.“
Og nú er Henley í forystu eftir 2. hring á einu af fyrstu PGA Tour mótum sínum sem fullgildur félagi.
Öðru sætinu á Waialea golfvellinum í Honolulu, Hawaii deila „Scott-arnir“ þ.e. forystumaður 1. dags Scott Langley, sem líka er nýliði á PGA og Scott Piercy, báðir aðeins 2 höggum á eftir Henley á samtals 12 undir pari, 128 höggum.
Í 4. sæti er síðan Matt Kuchar á 11 undir pari, 129 höggum (66 63). Fimmta sætinu deila síðan þeir Tim Clark frá Suður-Afríku og Bandaríkjamennirnir Charles Howell III og Chris Kirk.
Eftir 2. hring í gær var skorið niður og þeir sem ekki spila um helgina eru m.a. Michael Thompson, bróðir Lexi Thompson, sem aftur er kominn á PGA; KJ Choi, Jonas Blixt og Davis Love III.
Til þess að sjá stöðuna þegar Sony Open er hálfnað SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 2. dags SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
