Skíðakappi sprengdi næstum augað úr konu sinni í golfleik
Þeir sem fjárfest hafa í Golf á Íslandi, 800 bls. tveggja binda glæsilegu ritverki þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttur, sem út kom í tilefni 70 ára afmælis GSÍ hafa lesið í 1. kafla upprifjun á grein frá árinu 1931, sem birtist í Alþýðublaðinu:
„Þar sagði frá fegurstu stúlkunni í bænum Methuen í Bandaríkjunum, sem hét J. Evart Hill og átti mikinn fjölda af aðdáendum og biðlum. Dag einn fór hún í golfleik með einum af áköfustu biðlum sínum.
Segir svo í grein Alþýðublaðsins frá því fyrir 80 árum: „Allt í einu sló hann kúluna í 20 m fjarlægð frá stúlkunni, en kúlan settist í annað auga hennar og sprengdi það út.“
Þetta þótti mörgum ljótt að heyra (hér á Íslandi) og sanna að golfíþróttin væri ekki hættulaus fremur en aðrar íþróttagreinar.“
———————————-
Og sagan endurtekur sig 81 ári síðar:
Bode Miller, bandarískur gullmedalíuhafi á Ólympíuleikunum 2010 í Vancouver á skíðum, var í fyrradag í golfi með konu sinni, Morgan, sem er atvinnumaður í blaki.
Hann sló boltanum beint í andlit konu sinnar þannig að sauma þurfti 50 spor. Hér að neðan má sjá afleiðingu slysahöggsins:
Verður ekki betur séð en að tilraun hafi verið gerð til að „sprengja augað út“, þó óviljandi væri.
Morgan tvítaði eftirfarandi um atburðinn:„Finnst ég ekkert of „heit“. Fékk golfboltann í beinlínu drævi beint í andlitið á mér í dag frá elskulegum eiginmanni mínum. Ég elska hann enn, en á-i!“
Í gær leið Morgan aðeins betur, var farin að fá tilfinningu í andlitið, en sá ekkert með vinstra auganu.
Já, golfíþróttin er ekki hættulaus fremur en aðrar íþróttir – og einn golffréttamiðillinn taldi að myndin að ofan yrði varla efni í jólakort hjá þeim hjónakornum!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

