LET: Phatlum sigraði á Indlandi
Það var tælenska stúlkan Pornanong Phatlum, sem sigraði á Hero Women´s India Open. Phatlum lék samtals á 13 undir pari, 203 höggum (72 65 66) og átti heil 4 högg á þá sem næst kom, en það var sú sem átti titil að verja, hin sænska Caroline Hedwall , sem var samtals á 209 höggum (76 62 69).
Sannfærandi sigur hjá Phatlum á Evrópumótaröð kvenna! Með sigrinum varð hún fyrst kvenna til að sigra Hero Women´s India Open 3 sinnum.
Eftir sigurinn sagði Phatlum m.a.: „Ég er svo ánægð núna. Þetta er stórt mót; ég vann og eftir tvo daga er afmælið mitt þannig að þetta er bara stór gjöf til mín.“
Í 3. sæti varð landa Phatlum, frá Thaílandi, Nontaya Srisawang, á 7 undir pari, 209 höggum (71 70 68).
Fjórða sætinu deildu síðan Carlota Ciganda frá Spáni, Stefania Croce frá Ítalíu og hin enska Trish Johnson allar á samtals 3 undir pari hver.
Til þess að sjá úrslitin á Hero Women´s India Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
