Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson – 2. desember 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Pétursson. Bjarki er fæddur 2. desember 1994 og því 18 ára í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Borgarness (GB) og m.a. klúbbmeistari GB, 4. árið í röð á þessu ári. Það sem var merkilegt í Meistaramóti GB í ár var m.a. að Bjarki fór holu í höggi á 14. holu Hamarsvallar!!!
Bjarki var m.a. valinn efnilegasti kylfingur Íslands á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Árið 2011 tók Bjarki þátt í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Árið 2011 var Bjarka gott en hann varð Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta bæði í holukeppni og höggleik og m.a. kjörinn Íþróttamaður Borgarfjarðar á Íþróttahátíð UMSB í kjölfarið.

Bjarki Pétursson, GB, á síðari keppnisdegi Örninn Golfverslun, 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar, 27. maí 2012, á 7. braut í Leirunni. Mynd: Golf 1
Á þessu ári 2012 hefir Bjarki spilað bæði á Unglingamótaröð Arion banka og á Eimskipsmótaröðinni. Hann vann 1. mótið á Unglingamótaröðinni uppi á Skaga, sem og 3. mótið í Korpunni.
Bjarki hefir spilað á mótum erlendis í ár m.a. tók hann þátt í Finnish Amateur Championship dagana 16.-18. ágúst s.l.
Þá var Bjarki í verðlaunasæti (3. sæti) í einstaklingskeppninni á European Boys Challenge Trophy, sem fram fór í St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu dagana 20.-22. september s.l.
Sjá má viðtal, sem Golf1 tók við afmæliskylfinginn á árinu með því að SMELLA HÉR:
Komast má á facebook síðu Bjarka til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Matthew Shippen, Jr., (f. 2. desember 1879 – d. 20. maí 1968); Jenny Lee Smith, 2. desember 1948 (64 ára); Jay Haas, 2. desember 1953 (59 ára); Alexander Čejka, 2. desember 1970 (42 ára); Marco Ruiz, 2. desember 1974 (38 ára); ….. og ……
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



