Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og golflið ETSU í 3. sæti á Hawaii eftir 1. dag
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, og golflið East Tennessee State spiluðu 1. hring á Warrior Wave Intercollegiate mótinu í gær, en það fer fram á golfvelli Makai golfklúbbsins á golfstað St. Regis Princeville, í Princeville, á Hawaii.
Mótið fer fram dagana 5.-7. nóvember og er 1 hringur spilaður á hverjum degi. Alls eru þátttakendur 80 frá 16 háskólum.
Það er 10 tíma, tímamismunur milli Íslands og Hawaii; Guðmundur Ágúst fór út kl. 7:57 að staðartíma í gær, sem samsvaraði 17:57 að íslenskum tíma. Í kvöld fer Guðmundur út kl 7:39 að staðartíma af 1. teig, þ.e. kl. 17:39 að íslenskum tíma og má frá þeim tímapunkti fylgjast með gengi Guðmundar Ágústs hér að neðan.
Guðmundur Ágúst spilaði 1. hringinn á 2 yfir pari, 74 höggum og deilir sem stendur 32. sætinu í einstaklingskeppninni í mótinu. Hann fékk 2 fugla, 12 pör og 4 skolla á hringnum. Hann var á 4. besta skori liðs síns og telur það því, en lið ETSU er í 3. sæti í liðakeppninni.
Golf 1 óskar Guðmundi Ágúst góðs gengis á Hawaii í dag!!!
Fylgjast má með stöðunni á Warrior Wave Intercollegiate og gengi Guðmundar Ágústs með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
