Rory McIlroy er uppáhaldskylfingur Ingvars Evróputúrinn: Rory McIlroy svo til búinn að tryggja sér efsta sæti peningalistans
Rory McIlroy er svo til búinn að tryggja sér efsta sæti peningalista Evróptúrsins þar sem 5 helstu keppinautar hans hafa ákveðið að taka ekki þátt í 2 af þeim 3 mótum, sem eftir eru á árinu. (Sjá peningalistann með því að SMELLA HÉR: )
Þessir fimm eru Peter Hanson (nr. 2 á peningalistanum) og ensku kylfingarnir Justin Rose (þriðja sæti) og Ian Poulter (fjórða sæti) ásamt nýliðanum Branden Grace (fimmta sæti) og Ernie Els (sjötta sæti) – en þeir hafa ákveðið að taka ekki þátt í Barclays Singapore Open og mótinu í vikunni þar á eftir UBS Hong Kong Open.
Hanson er í 2. sæti og er €764,776 á eftir McIlroy eftir að hafa aðeins orðið T-24 á HSBC Champions en hann þurfti nauðsynlega að hljóta 1. sætið og einkum $ 1,2 milljóna 1. vinninginn sem Poulter hlaut og kom honum úr 13. sæti Race to Dubai í 4. sætið s.s. áður greinir. Poulter er nú aðeins 940,977 frá McIlroy, en þetta er 15. sigur hans og Poulter hlýtur nú í fyrsta sinn þátttökurétt á The Masters í apríl á næsta ári.
Skipuleggjendur Barclays Singapore Open voru búnir að láta Peter Lawrie fá einn af 8 boðsmiðum á mótið en þegar hann ákvað að koma ekki var Peter Hanson næst boðið en hann hefir afþakkað og flaug þess í stað til fjölskyldu sinnar í Orlando og ætlar að vera þar, þar til lokamótið í Dubai hefst. Hann segist þarfnast frís.
Sama er að segja um Rose og Poulter. Poulter hefir ákveðið að taka ekki þátt í Singapore Open, því hann ætlar að tía upp á Australian Masters, sem fram fer vikuna á eftir og í sömu viku og UBS Hong Kong Open fer fram.
Rory hins vegar mun keppa í Singapore og síðan freista þess að verja titil sinn í Hong Kong og þarf í raun aðeins að verða meðal 10 efstu í Singapore til þess að tryggja sér efsta sæti peningalistans í Evrópu. Ef það tekst ekki þarf Rory aðeins að verða meðal 3 efstu í Hong Kong eða meðal topp-10 í Dubaí og þá hefir honum tekist það sama og Luke Donald afrekaði á síðasta ári, þ.e. orðið í efsta sæti á peningalistum tveggja stærstu mótaraða heimsins í karlagolfinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
