Bandaríska háskólagolfið: Sigurður Gunnar lauk leik í 17. sæti og Hrafn í 27. sæti í Mississippi
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og Sigurður Gunnar Björgvinsson, GK, sem báðir spila með golfliði Faulkner háskóla luku leik á MGCCC Holiday Inn Fall Invitational í Gulfport, Mississippi í dag.

Frá Meistaramóti Keilis 2011 – Rúnar Arnórs (2. sæti) – Björgvin Sigurbergs (sigurvegari) og Sigurður Gunnar Björgvinsson (3. sæti). Mynd: gsimyndir.is
Mótið var tveggja daga frá 29.-30. október og voru þátttakendur 57 frá 11 háskólum.
Sigurður Gunnar lék á samtals 11 yfir pari, 155 höggum (85 70) og hafnaði í 17. sæti
Hrafn lék samtals á 14 yfir pari (84 74) og hafnaði í 27. sæti.
Golflið Faulkner háskólans sem þeir Hrafn og Sigurður Gunnar spila fyrir varð í 2. sæti í liðakeppninni – Sigurður Gunnar var á 4. besta skori í liði Faulkner og taldi skor hans en skor Hrafns taldi ekki að þessu sinni.
Ernirnir þ.e. The Faulkner Eagles, lið Hrafns og Sigurðar Gunnars keppir ekki aftur fyrr en á vorönn 2013, en enn er ekki búið að birta leikjadagskránna.
Til þess að sjá úrslitin á MGCCC Holiday Inn Fall Invitational SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
