Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2012 | 12:30

PGA: Nick Watney er sigurvegari CIMB Classic – Tiger lauk leik í 4. sæti – hápunktar og högg 4. dags

Það var Nick Watney sem stóð uppi, e.t.v. nokkuð óvænt, sem sigurvegari CIMB Classic á The Mines Resort & Golf Club í Kuala Lumpur, í Malasíu.

Hann átti ótrúlegan lokahring upp á 61 högg!!!! …. þar sem hann fékk 11 fugla, 6 pör og 1 skolla á 18. holu, en sú 18. virðist reyndist kylfingunum í mótinu býsna erfið. Segja má með nokkrum sanni að Nick hafi verið að líta á 59 högg því ef hann hefði náð fugli í stað skolla á 18. hefði sú orðið raunin!

Watney bætti vallarmet sem Boo Van Pelt setti í gær um 1 högg – (en Van Pelt fékk einmitt skramba á 18 og var líkt og Watney að horfa á 59 högg!)

Nick Watney lék samtals á 22 undir pari, 262 höggum (71 65 65 61) og fékk 1,1 milljón dollara í sinn hlut (u.þ.b. 121 milljón íslenskra króna).

Forystubræðurnir í mótinu þeir Boo Van Pelt og Robert Garrigus urðu að sætta sig við 2. sætið í mótinu; voru báðir 1 höggi á eftir Watney á 21 undir pari, 263 höggum; Van Pelt (70 65 62 66)  og Garrigus (64 64 69 66).

Tiger átti glæsihring upp á 63 högg og lauk leik í 4. sæti á samtals 19 undir pari, 265 höggum (66 67 69 63).  Tiger deildi 4. sætinu með landa sínum Chris Kirk og Brendon de Jonge frá Zimbabwe.

Til þess að sjá úrslitin á CIMB Classic í Malasíu SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 4. dags á CIMB Classic SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá högg 4. dags, sem Nick Watney átti á CIMB Classic SMELLIÐ HÉR: