Afmæliskylfingur dagsins: Nick O´Hern – 18. október 2012
Það er Nick O´Hern sem er afmæliskylfingur dagsins. O´Hern fæddist 18. október 1971 í Perth, Ástralíu og er því 41 árs í dag. Hann komst í fréttirnar fyrir nákvæmlega viku síðan þegar hann leiddi eftir 1. hring Frys.com Open á 62 höggum 11. október 2012. Nick ver afmælisdeginum með því að spila á McGladreys mótinu á Sea Island í Georgíu. O´Hern gerðist atvinnumaður 1994 og hefir sigrað 5 sinnum þar af 2 sinnum á PGA Ástralasíu túrnum. Sem stendur spilar hann á 3 mótaröðum PGA Tour, Evróputúrnum og PGA Ástralasíutúrnum. Besti árangur O´Hern í risamótum er T-6 árangur á Opna bandaríska 2006.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Stephen Douglas Allan, 18. október 1973 (39 ára); Rafa Echenique, 18. október 1980 (32 ára) ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
