Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2012 | 18:00

GB: Andrea Ásgríms og Örn Ævar voru á besta skorinu í Opna Borgarnes-mótinu

Í gær, sunnudaginn 5. ágúst fór fram Opna Borgarnesmótið. Keppnisform var punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar og verðlaun veitt fyrir efstu 8 sæti í punktakeppni og besta skor í karla- og kvennaflokki, auk fjölda nándarverðlauna. Þátttakendur voru 192, (48 konur og 144 karlar) og 183 luku leik.  Heildarverðmæti vinninga var um 700.000,-

Klúbbhús GB. Mynd: Golf 1

Það var heimamaðurinn Eiríkur Ólafsson, sem sigraði punktakeppnina á 44 glæsipunktum.  Á besta skori voru klúbbmeistarar GO og GS 2012, Andrea Ásgrímsdóttir, GO (80 högg), sem jafnframt átti lengsta teighögg kvenna og Örn Ævar Hjartarson, GS, 67 högg eða 4 undir pari.  Glæsilegt!!!  Á næstbesta skorinu af körlunum voru klúbbmeistari GB, Bjarki Pétursson og Magnús Lárusson, GKJ, 71 höggi, eða sléttu pari en jafnframt átti Magnús lengsta teighögg af gulum. Það sem einnig var glæsilegt var örninn sem Sigurður Elvar Þórólfsson, GL fékk á par-5, 13. brautinni en veitt voru nándarverðlaun fyrir að vera sem næstur pinna í 3 höggum, sem Sigurður Elvar hlaut með glæsibrag.

Örn Ævar Hjartarson., GS, spilaði á frábærum 67 höggum!!! Mynd: Golf 1.

Helstu úrslit urðu eftirfarandi:

Í punktakeppni:
1.    sæti  á punktum 44 punktum Eiríkur Ólafsson, GB.
2.    sæti  á 42  punktum Hjörtur Ingþórsson, GR.
3.    sæti á 41 puntkti Heiðar Henning Guðmundsson, GL.
4.    sæti á  40  punktum Þórir Guðmundsson, GKG.
5.    sæti á  39  punktum Elísabeti Böðvarsdóttir, GKG.
6.    sæti á   39  punktum Vala Valtýrsdóttir, GKJ.
7.    sæti á   39 punktum Helgi Karlsson, GSG.
8.    sæti á   38  punktum Arnór Tumi Finnsson, GB.

Í höggleik í karlaflokki – besta skor:
1.    sæti  á  67 höggum Örn Ævar Hjartarson GS  eða 4 undir pari vallar.

Í höggleik í kvennaflokki – besta skor:
1.    sæti  á 80 höggum  Andrea Ásgrímsdóttir GO.

Nándarverðlaun:
1.    Á annarri braut  Eiríkur Karlsson, GL, 62cm.
2.    Á áttundu braut  Sigurður Jónsson, GG,  330cm.
3.    Á tíundu braut  Hlynur Þór Stefánsson, GO, 85cm.
4.    Á fjórtándu braut  Sigurður Jónsson, GG, 51cm.
5.    Á sextándu braut Vilhjálmur Birgisson, GL, 47cm.

Næst holu í 2 höggi á 4 braut: Annabella Albertsdóttir, GB, 6cm.

Næst holu í 2 höggi á 15 braut: Ingvi Árnason, GB, 206 cm.

Næst holu í 3 höggi á 3 braut: Hlynur Þór Stefánsson, GO, 55 cm.

Næst holu í 3 höggi á 13 braut: Sigurður Elvar Þórólfsson, GL, 0 cm (örn).

Lengsta teighögg á 18 braut af gulum teig: Magnús Lárusson GKJ.

Lengsta teighögg á 18 braut af rauðum teig: Andrea Ásgrímsdóttir, GO.