Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2023 | 18:00

LPGA: Anannarukarn sigraði í Bank of Hope holukeppninni

Það var hin thaílenska Pajaree Anannarukarn, sem sigraði í Bank of Hope LPGA Match-play presented by MGM Rewards.

Mótið fór fram dagana 24.-28. maí 2023 á Shadow Creek golfvellinum í Las Vegas, Nevada.

Í lokaviðureigninni sigraði Pajaree, Ayöku Furue frá Japan 3&1.

Fyrir sigurinn hlaut Pajaree $ 225.000,- (u.þ.b. 32,2 milljónir íslenskra króna)

Leona Maguire frá Írlandi varð í 3. sæti.

Pajaree Anannarukarn (sem kölluð er Meaw) er fædd 30. maí 1999 og því að verða 24 ára. Hún var í American School of Bankok menntaskólanum. Meaw gerðist atvinnumaður í golfi 2017 og hefir verið á LPGA frá árinu 2019. Þetta er 2. sigur hennar á LPGA, en í fyrra skiptið sigraði hún  á ISPS Handa World Inv., 1. ágúst 2021. Hún er 5. Thaílendingurinn til að sigra á LPGA – (á eftir Ariyu Jutanugarn, Moriyu Jutanugarn, Thidöpu Suwannapuru og  Patty Tavatanaki).  Meaw á alls í beltinu 8 sigra, sem atvinnumaður. Besti árangur hennar í risamótum er T-10 árangur á Evian Championship, árið 2021.

Sjá má lokastöðuna á Bank of Hope holukeppninni með því að SMELLA HÉR: 

Mynd: LPGA