Afmæliskylfingur dagsins: Halldór X Halldórsson – 5. apríl 2023
Afmæliskylfingur dagsins er Halldór X Halldórsson, GKB. Halldór er fæddur 5. apríl 1976. Þess mætti geta að Halldór á nákvæmlega sama afmælisdag og sænski kylfingurinn og næsti fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu: Henrik Stenson, Báðir eru þeir Halldor og Henrik fæddir 5. apríl 1976 og eiga því 47 ára afmæli í dag.
Halldór X er frá Sauðárkróki og byrjaði í golfi 1987. Hann er í Golfklúbbi Kiðjabergs, GKB . Halldór var mjög sigursæll í opnum mótum sumarið 2011, sigraði m.a. á Opna Carlsberg mótinu 30. júlí 2011 á Svarfhólsvelli á Selfossi (71 högg); Opna Golfbúðarmótinu á Svarfhólsvelli á Selfossi, 27. ágúst 2011 (71 högg) og Opna Vetrarmótinu í Leirunni 19. nóvember 2011 (70 högg) og þá er aðeins fátt eitt talið af afrekum Halldórs. Árið 2012 spilaði Halldór á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Besta skor hans er 69 í Leirunni. S.l. 2 ár hefir Halldór tekið þátt í nokkrum Opnum mótum með góðum árangri, eins og hans er von og vísa.
Halldór á eina dóttur, Guðrúnu Ernu, 21 árs, sem spilar golf. Sjá má viðtal Golf 1 við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:
Komast má á Facebook síðu Halldórs X til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju með daginn hér fyrir neðan:

Halldór X Halldórsson (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lady Margaret Rachel Scott, f. 5. april 1874 – d. 27. janúar 1938); John F. „Johnny” Revolta f. 5. apríl 1911 – d. 3. mars 1991; Morten Geir Ottesen, 5. apríl 1959 (64 ára); Bob Burns, 5. apríl 1968 (55 ára); Henrik Stenson, 5. apríl 1976 (47 ára) Brendan Steele, 5. apríl 1983 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!) – leiddi m.a. á PGA Championship 2011 fyrir lokadaginn…. og ….. Íslenskur Ferðamarkaður, 5. apríl 1982 (41 árs); Ryan Brehm, 5. apríl 1986 (37 ára – Spilar á PGA Tour); Bílabankinn Bílasala, 5. apríl 1989 (34 ára) … og …
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
