Masters 2023: Röngum kylfingi sent boð um þátttöku í Masters risamótinu!
Nr. 54 á heimslistanum Scott Stallings var nýlega komið á óvart þegar hann fékk skilaboð frá manni, sem ber sama nafn og hann.

Scott Stallings, nr. 54 á heimslistanum
Í ljós kom að skipuleggjendur Masters mótsins 2023 höfðu sent röngum Scott Stallings boðskort um að spila á Masters mótinu 2023 – en hinn rangi Scott Stallings ber augljóslega sama nafn og nr. 54 á heimslistanum, hann býr á sama svæði og jafnvel eiginkonur beggja heita báðar Jennifer.
Atvinnukylfingurinn Scott Stallings fór á Twitter og sagði frá þessum skrítna ruglingi:
„[Ég] var bókstaflega búinn að tékka á pósthólfinu mínu fimm sinnum á dag, þegar ég fékk tilkynningunni í gær,“ skrifaði Stallings, eftir að hann fékk eftirfarandi skilaboð frá nafna sínum:
„Hæ Scott. Ég heiti líka Scott Stallings og er frá Georgíu. Konan mín heitir líka Jennifer.“
“Ég fékk bréf með FedEx í dag, þar sem mér er boðið að spila í Masters risamótinu 6.-9. apríl 2023.“
“Ég er 100% viss um að EKKI er verið að bjóða mér. Ég spila golf en vá! … hvergi nærri á því stigi sem þú gerir.„
„Þetta er mjög fallegur pakki með öllu sem þarf til þátttöku í Masters. Ég held að það sé eitthvað rugl í gangi vegna nafna okkar, nafna eiginkvenna okkar og landfræðilegri staðsetningu.“
„Ég er ekki að grínast, ég lofa því.“
Sjá má frétt um ruglinginn á Youtube með því að SMELLA HÉR:
Scott Stallings atvinnukylfingi var auðvitað létt og þakkaði nafna sínum fyrir „að gera hið rétta“ þ.e. skila bréfinu í réttar hendur. Hann ætlar að bjóða nafna sínum og eiginkonu hans á Masters með sér til þess að sjá æfingahringi fyrir aðalkeppnina og síðan í mat á mánudeginum í Mastersvikunni.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
