NGL: Allir íslensku strákarnir komust gegnum niðurskurð á TB Samsø Classic mótinu!
Frábært!
Allir fjórir íslensku þátttakendurnir: Andri Þór Björnsson, GR; Aron Snær Júlíusson, GKG; Axel Bóasson, GK og Bjarki Pétursson, GB & GKG, komust í gegnum niðurskurð á Thomas Bjørn Samsø Classic mótinu.
Mótið fer fram 08/06/2022 – 10/06/2022 í Samsø golfklúbbnum, á Samsø eyju, 15 km undan Jótlandi í Danmörku og spila því allir Íslendingarnir lokahringinn á morgun.
Efstur af Íslendingunum er Axel Bóasson. Hann er búinn að spila á 7 undir pari, 137 höggum (68 69).
Næstbestur Íslendinganna er Andri Þór Björnsson. Skor hans er samtals 5 undir pari, 139 högg (69 70).
Bjarki Pétursson hefir spilað á samtals 3 undir pari, 141 höggi (68 73).
Svo er það Íslandsmeistarinn í höggleik 2021, Aron Snær Júlíusson. Hann var undir niðurskurðarlínunni í gær, en náði sér upp með frábæru spili á 2. hring; spilaði samtals á 2 undir pari, 142 högg (73 69).
Sjá má stöðuna á Thomas Bjørn Samsø Classic með því að SMELLA HÉR:
Í aðalmyndaglugga: Frá Samsø golfvellinum, sem þykir einn af þeim fegri í Danmörku.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
