Nokkrir þekktir kylfingar spila í arabísku ofurgolfdeildinni LIV
Það var vitað mál að Phil Mickelson myndi spila í arabísku ofurgolfdeildinni, þar sem verðlaunafé er mun hærra en á PGA Tour.
Jafnframt er vitað mál að þeir kylfingar sem lýsa því yfir að ætla að spila á mótum ofurgolfdeildarinnar, hafi fyrirgert spilarétti sínum á PGA Tour, sem m.a. sýndi sig í því að Mickelson tók ekki þátt í PGA Championship, til að reyna að verja titil sinn þar, nú í ár. Hann hefir hins vegar lýst því yfir að hann ætli að halda í lífstíðarspilarétt sinn á PGA Tour, þó flestir, sem ætla að spila á LIV, og hafa spilað á PGA Tour ætli sér ekki að spila þar áfram.
Nú hafa nokkrir þekktir kylfingar til viðbótar tilkynnt að þeir muni spila á mótum arabísku ofurgolfdeildarinnar.
Það eru þeir Dustin Johnson, Patríck Reed og Bryson DeChambeau.
Tveir hinna síðarnefndu hafa verið afar umdeildir á PGA Tour.
Upplýst hefir verið að DeChambeau hafi þegið $100 milljóna greiðslu fyrir að samþykkja að taka þátt í nýju deildinni, LIV.
Fyrsta mót LIV fer fram í London, nú í vikunni. Á fyrsta mótinu munu Reed og DeChambeau ekki taka þátt, en 7 önnur mót eru á dagskrá og munu þeir spila í einhverjum þeirra.
Eftirfarandi kylfingar taka hins vegar þátt í 1. mótinu og hefja allir leik kl. 14:15 að staðartíma í London fimmtudaginn 9. júní og er eins og sjá má margt þekktra kylfinga meðal þátttakenda, þó nokkrir óþekktari séu einnig með í bland (þekktir kylfingar feitletraðir)
– 1. braut Dustin Johnson, Scott Vincent, Phil Mickelson
– 2. braut Sergio Garcia, Talor Gooch, Pablo Larrazabal
– 3. braut Charl Schwartzel, Graeme McDowell, Wade Ormsby
– 4. braut Sam Horsfield, Sadom Kaewkanjana, Andy Ogletree
– 5. braut Richard Bland, Ratchanon Chantananuwat (a), Ryosuke Kinoshita
– 6. braut Jediah Morgan, Ian Snyman, Oliver Fisher
– 7. braut Chase Koepka, Turk Pettit, Kevin Yuan
– 8. braut Itthipat Buranatanyarat, Hennie Du Plessis, James Piot (a)
– 10. braut Jinichiro Kozuma, Phachara Khongwatmai, JC Ritchie
– 12. braut David Puig (a), Oliver Bekker, Viraj Madappa
– 13. braut Peter Uihlein, Adrian Otaegui, Blake Windred
– 14. braut Laurie Canter, Martin Kaymer, Hudson Stafford
– 15. braut Shaun Norris, Travis Smyth, Hideto Tanihara
– 16. braut Branden Grace, Sihwan Kim, Matt Jones
– 17. braut Lee Westwood, Bernd Wiesberger, Justin Harding
– 18. braut Louis Oosthuizen, Kevin Na, Ian Poulter
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
