NGL: Axel fékk ás á Thomas Bjørn Samsø Classic mótinu
Atvinnumaðurinn Axel Bóasson, GK, fór holu í höggi á 8. holu vallar Samsø golfklúbbsins, í Danmörku, þar sem Thomas Bjørn Samsø Classic-mótið, sem er hluti Ecco mótaraðarinnar í Nordic Golf League (skammst.: NGL) fer fram.
Fjórir íslenskir kylfingar taka þátt í mótinu. Auk Axels eru það: Andri Þór Björnsson, GR; Aron Snær Júlíusson, GKG og Bjarki Pétursson, GB & GKG.
Eftir fyrsta dag eru Axel og Bjarki T-5; léku báðir fyrsta hring á 4 undir pari, 68 höggum.
Andri Þór er T-10, lék á 3 undir pari, 69 höggum.
Aron Snær er sá eini sem er undir niðurskurðarlínu; en spáin nú er að hún verði við 1 undir pari. Aron lék 1. hring á 1 yfir pari, 73 höggum.
Golf 1 óskar Axel innilega til hamingju með ásinn!!! Glæsilegt að fara holu í höggi á NGL-móti!!!
Sjá má stöðuna á Thomas Bjørn Samsø Classic-mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
