Sergio Garcia: „Það er sérstakt að vera Masters sigurvegari en ferill minn var þegar frábær þegar ég vann“
Aðeins 55 kylfingum hefir tekist að sigra á Masters risamótinu, frá því það hóf göngu sína, fyrir 87 árum, þ.e. 1934. Það sýnir bara hversu mikill eðalklúbbur kylfinga, sigurvegarar Masters eru.
Sumir kylfingar hafa sigrað í mótinu oftar en 1 sinni, en það eru: (tæmandi listi) Jack Nicklaus 6 sinnum og Tiger Woods 5 sinnum, Arnold Palmer 4 sinnum og Sam Snead, Jimmy Demaret, Gary Player, og Nick Faldo og Phil Mickelson 3 sinnum, Horton Smith, Byron Nelson, Ben Hogan, Tom Watson, Bernhard Langer, Ben Crenshaw, Seve Ballesteros, José María Olazabal og Bubba Watson 2 sinnum, auk þess sem það féll niður 1943-1945 vegna 2. heimsstyrjaldarinnar.
Sergio tókst loks í 74. skipti sem hann reyndi við sigur í risamóti að sigra… og það var á Masters fyrir 5 árum síðan, 2017.
Eftir sigurinn á Masters fór fólk að spekúlera í hvenær Sergio myndi bæta öðrum risamótssigri við.
„Ég vissi að þetta myndi gerast,“ sagði García þá. „Þegar ég var ekki með neina (risamótstitla) var það: „Hvað ef hann á aldrei eftir að vinna risamót?“ Þá svaraði ég: „Í lok dagsins, augljóslega já, að vinna risamót gerir feril þinn betri,“ en mér fannst ferill minn þá þegar vera frábær ferill. Þú getur spurt marga stráka hérna úti og þeir myndu vera mjög ánægðir með feril eins og ég átti, jafnvel þar til (ég sigraði á Masters).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
