Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2022 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn & félagar í 2. sæti á Craft Farms Intercollegiate

Birgir Björn Magnússon, GK og félagar í „The Salukis“ háskólaliði Southern Illinois tóku þátt í Craft Farms Intercollegiate háskólamótinu.

Mótið fór fram dagana 27.-29. mars 2022 í Craft Farms GC, Gulf Shores, Alabama.

Þátttakendur voru 75 frá 13 háskólum.

Birgir Björn lék á samtals 6 yfir pari, 222 höggum (74 74 74) og varð T-36.

„The Salukis“ urðu í 2. sæti í liðakeppninni!!! Glæsilegt!!!

Sjá má lokastöðuna á Craft Farms Intercollegiate háskólamótinu með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót „The Salukis“ er 11.-12. apríl n.k. í New York.