Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2022 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Kristín Sól & félagar sigruðu á Holiday Inn Express Classic

Kristín Sól Guðmundsdóttir, GM og félagar í Roger State University (RSU) tóku þátt í Holiday Inn Express Classic háskólamótinu.

Mótið fór fram dagana 28.-29. mars 2022 í St. Joseph Country Club í St. Joseph, Missouri.

Þátttakendur voru 76 frá 13 háskólum.

Kristín Sól varð T-3 í einstaklingskeppninni á samtals 12 yfir pari, 156 höggum (81 75). Hún var á 2.-3. besta skori RSU.

Lið Roger State sigraði í mótinu í liðakeppninni!!! Glæsilegt!!!

Sjá má lokastöðuna á Holiday Inn Express Classic með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Kristínar Sól og RSU er 4.-5. apríl n.k. í Wichita, Kansas.