09/11/2020. Ladies European Tour 2020. Aramco Saudi Ladies International Presented By Public Investment Fund. Royal Greens Golf & Country Club, Saudi Arabia. November 12-15 2020. Gudrun Bjorgvinsdottir of Iceland during a practice round. Credit: Tristan Jones. LET: Guðrún Brá við keppni í Sádí – fylgist með HÉR
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á Evrópumótaröð kvenna, (Ladies European Tour, skammst: LET).
Mótið ber heitið Aramco Saudi Ladies International og fer fram í Royal Greens Golf & Country Club, í Sádí.
Guðrún Brá átti erfiðan dag í gær, þar sem hún spilaði á heilum 9 yfir pari, 81 höggi og er T-91.
Fremur ólíklegt er að hún komist gegnum niðurskurð, því byrjunin hjá henni á 2. hring er ekki góð.
Hún er komin í +2 eftir 4 spilaðar holur. Sem stendur er niðurskurðarlínan við +6 þannig að það er enn sjéns með góðum kafla að vinna upp 5 högg. Það væri frábær árangur hjá Guðrúnu Brá ef hún kæmist gegnum niðurskurð – þó útlitið, sem stendur, sé því miður heldur svart.
Það verður að segjast að þetta er afar sterkt mót og þátttakendur í heimsklassa, m.a. er hin sænska Anna Nordqvist meðal keppenda.
Í efsta sæti eftir 1. dag voru Solheim Cup kylfingurinn enski Georgia Hall og þýski kylfingurinn Sophie Witt, báðar á 3 undir pari, 69 höggum. Í 2. sæti, 1 höggi á eftir eru síðan Anna Nordqvist og bandarísku kylfingarnir Angel Yin (vinkona Ólafíu Þórunnar) og Lindsey Weaver-Wright, sem allar spila á LPGA.
Fylgjast má með Guðrúnu Brá með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
