Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2022 | 08:45

DeChambeau braut bílrúður á bílum tveggja kaddýa með bombum af æfingasvæðinu

Það er ekkert leyndarmál að Bryson DeChambeau er einn af högglengstu kylfingum heims.

Hann varð t.a.m. í 8. sæti á heimsmeistaramótinu um lengsta drævið og hefir verið efstur á blaði á PGA mótaröðinni yfir högglengstu kylfinga síðustu tvö ár, með 322,1 yarda (uþb. 294 m) og 323,7 yarda (uþb. 296 m) meðaltal.

Hins vegar, á Farmers Insurance Open, reyndist fjarlægð hans lítilsháttar vandamál.

Greint var frá því á Twitter-síðu „The Shotgun Start“ að hinn 28 ára DeChambeau hefði splundrað tvær rúður í bílnum þegar hann byrjaði að „chippa boltum yfir girðinguna“ á æfingasvæðinu.

Ökutækin tilheyrðu tveimur kaddýum og stóðu á moldarlóð, við æfingasvæðið, næst 8. flöt á Norðurvellinum.

Það er ekki í fyrsta skipti sem vandamál hafa verið með lengd dræva DeChambeau.

Í Royal Greens golfklúbbnum í Sádi-Arabíu sást hann t.a.m. slá á 12. teig af æfingasvæðinu á sl. ári, 2021.

DeChambeau hefir tilkynnti að hann muni slá boltann lengra en nokkru sinni fyrr árið 2022 og því hafa  mótshaldarar augljóslega þurft að gera nokkrar breytingar, þannig að 12. svæði og nærliggjandi svæði sé öruggt fyrir leikmenn og áhorfendur.

Lausn þeirra var að reisa girðingu aftast á brautinni til að koma í veg fyrir að dræv DeChambeau fljúgi yfir og þurrki út þá sem eru á svæðinu.