Ellý Erlingsdóttir, GK. Mynd. Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ellý Erlingsdóttir – 15. janúar 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Ellý Erlingsdóttir.

Ellý fæddist 15. janúar 1962 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Ellý er í Golfklúbbnum Keili; hefir m.a. setið í stjórn GK og þar að auki mikill FH-ingur. Hún er fyrrum bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Ellý er gift Emil Lárus Sigurðssyni, lækni og eiga þau 3 börn: Erling Daða, Guðrúnu og Kristján Gauta Emilsbörn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ellý til hamingju með afmælið hér að neðan:

Ellý Erlingsdóttir (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Howard Allen, 15. janúar 1949 (73 ára); Hraunkots Handverk (64 ára);  Árni Þór Freysteinsson, 15. janúar 1966 (56 ára); Ted N Tryba, 15. janúar 1967 (55 ára); Einar Páll Tamimi, 15. janúar 1969 (53 ára); Sirry Hallgrimsdottir, 15. janúar 1971 (51 árs); Y.E. Yang (á kóreönsku: 양용은 ) 15. janúar 1972 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); og Will Strickler, 15. janúar 1986 (36 ára); Alyssa Ferrell, 15. janúar 1992 (30 ára STÓRAFMÆLI);  Þröstur Ingvarsson … og….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is