Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2022 | 12:00

Tim Rosaforte látinn

Einn virtasti golffréttaritari heims, Tim Rosaforte er látinn.

Rosaforte var fæddur 25. október 1955 í Mount Kisco, New York og lést 11. janúar 2022 á heimili sínu í Palm Beach Gardens í Flórída.

Hann var því aðeins 66 ára þegar hann lést og var banamein hans sjúkdómur af völdum Alzheimer.

Rosaforte ritaði m.a. um golftengt efni fyrir Tampa Times, South Florida Sun-Sentinel, Palm Beach Post, Sports Illustrated og Golf Digest.

Jafnframt kom hann fram í sjónvarpi sem golffréttamaður m.a. á USA Network and Golf Channel.

Hann var sjálfur með 12 í forgjöf, var forseti sambands bandarískra golffréttaritara (Golf Writers Association of America) og eftir hann liggja 4 bækur.

Rosaforte hlaut margar viðurkenningar m.a. The PGA of America Lifetime Achievement in Journalism. Árið 2020 var hann einnig 12. heiðursmeðlimur PGA of America og komst þar með í hóp ekki ómerkari manna en m.a. fyrrum bandaríkjaforsetar Dwight D Eisenhower, Gerald Ford og George HW Bush. Hann var fyrsti fréttamaðurinn til þess að hljóta þessa viðurkenningu.

Háskóli Rosaforte, Rhode Island University, stofnaði golfnámsstyrk í hans nafni og honum til heiðurs.

Jay Monahan, framkvæmdastjóri PGA Tour sagði m.a. um andlát Rosaforte: „“The PGA Tour family lost a friend today in Tim Rosaforte, one of the great golf journalists of his generation.“

Tim Rosaforte skilur eftir sig eiginkonuna Genevieve, dæturnar Molly og Gennu og 3 barnabörn.